Quantcast
Channel: Þjóðkirkjan
Viewing all articles
Browse latest Browse all 638

Talningu atkvæða í kjöri til vígslubiskups í Skálholtsumdæmi lokið

$
0
0

Atkvæði hafa verið talin í kjöri til embættis vígslubiskups í Skálholtsumdæmi. Kosið var milli þriggja frambjóðenda. Á kjörskrá voru 979 manns. Kosningaþátttaka var um 62%. Alls bárust 605 atkvæði. Ógild atkvæði voru 24 og auðir seðlar 5. Þau féllu þannig: Sr. Axel Árnason hlaut 95 atkvæði, sr. Eiríkur Jóhannsson, hlaut 234 atkvæði og sr. Kristján Björnsson hlaut 247 atkvæði. Samkvæmt því hlaut enginn meirihluta atkvæða og verður kosið að nýju á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu þ.e. sr. Eiríks og sr. Kristjáns.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 638