Miðvikudaginn 27. september nk. kl. 20 fer fram síðasti kynningarfundur vígslubiskupsefna fyrir komandi kjör til vígslubiskups í Skálholti. Að þessu sinni er komið að Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Fundurinn verður haldinn í Safnaðarheimili Háteigskirkju. Frambjóðendurnir munu flytja kynningar sínar og fundarmenn fá tækifæri til að leggja fyrir þá spurningar. Fundarstjóri verður Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður á RÚV. Allir áhugasamir um kjörið eru velkomnir á fundinn en sérstaklega eru kjörmennirnir hvattir til að mæta og kynna sér framboð og málstað vígslubiskupsefnanna.
↧
Síðasti kynningarfundur prófastsdæmanna vegna kjörs til vígslubiskups í Skálholti
↧