Boðið er til kyrrðardvalar á Löngumýri í Skagafirði, dagana 5.-8. júní – frá því síðdegis á komudegi og þar til að loknum morgunverði 8. júní.
Áhersla verður á kyrrð, helgihald og uppbyggilegar stundir en annars þögn, heilu dagana tvo. Einnig býðst andleg fylgd (spiritual direction), daglega – tekið er mið af hefðinni frá Ignatíusi Loyola í þessum viðtölum.
Umsjón með þessari kyrrðardvöl hafa hjónin sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson og Ástríður Kristinsdóttir, á Egilsstöðum.
Verð kr. 38 þúsund (hjónaafsláttur).
Skráning – fyrir 15. maí – og nánari upplýsingar á netfanginu: vigfus50@gmail.com eða í síma 863 6866.