Sunnudaginn 2. október kl. 20:00 verður svokölluð Áslaugar messa í Haukaheimilinu á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Í messunni verður frumflutt ný messutón (Áslaugartón) eftir Áslaugu Helgu Hálfdánardóttur og í messunni einnig verður flutt tónlist eftir hana.
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar Baldurssonar. Einsöngvarar verða: Áslaug Helga, Áslaug Fjóla Magnúsdóttir og Kristjana Þórey Ólafsdóttir.
Hljómsveitina skipa: Friðrik Karlsson á gítar, Matthías Baldursson á píanó, Þorbergur Ólafsson á trommur og Þórir Rúnar Geirsson á bassa.
Stundina leiða Sr. Kjartan Jónsson og Áslaug Helga.