95 kirkjuhurðir er sýning Rúnars Reynissonar á Torgi Neskirkju. Hún opnar 31. október kl. 20:00, á 500 ára afmæli siðaskiptanna.
Þegar við göngum til kirkju er óvíst að við veltum því mikið fyrir okkur hvernig kirkjuhurðin lítur út. Klukkur hringja til guðsþjónustu eða athafna og dyrnar eru opnar upp á gátt. Þá fer lítið fyrir flekunum sem annars byrgja dyraopið.
Það er helst er við komum að luktum dyrum sem veitum athygli hurðunum sem meina okkur inngöngu.
Siðaskiptin eru sögð eiga upptök sín í mótmælum sem fest voru á kirkjuhurð. Þann 31. október 1517 á Marteinn Lúther að hafa neglt andmæli sín gegn aflátssölu páfa í 95 liðum, á hurð Hallarkirkjunnar í Wittenberg. Þetta var upphafið að stórfelldum breytingum í trúarlífi og menningu í Evrópu og raunar miklu víðar.
Rúnar Reynisson ók að kirkjum landsins og tók myndir af hurðunum þeirra. Hann sýnir 95 þeirra og vísar um leið til upphafs siðaskiptanna. Litríkt myndasafnið er eins og mósaíkverk sem kallar fram hugrenningar um kirkju og kirkjur. Kirkjurnar eru sumar hverjar með því fegursta sem upphugsað hefur verið og smíðað hér á landi. Einhverjar virðast undarlegar. Sumar eru ásjónur þéttra byggða. Aðrar birta okkur horfinn heim á yfirgefnum slóðum. Hurðirnar marka skilin á milli þessara helgidóma og umhverfisins. Á myndunum má sjá glansandi lakk og fágað látún. Þar er líka fúi og ryð. Kirkjan er svo fjölbreytt og að baki hverri hurð er handverk fólks sem vildi leggja sig fram um að prýða helgidóminn í sinni byggð.
Þegar myndasmiðurinn ók í hlað voru flestar kirkjurnar lokaðar. Með vísan í viðleitni Lúthers til siðbótar, spurði hann um siði innan kirkju og samfélags á okkar dögum. Siðbót er ekki einstakur atburður heldur sístæður. Við þurfum alltaf að líta í eigin barm. Siðaskiptafrömuðir sögðu upp á latínu: Ecclesia semper reformanda est! Eða: Kirkjan þarf stöðugt að ganga í gegnum siðbót! Á okkar dögum snýr hún að knýjandi samviskuspurningum er varða ekki síst hurðir sem loka dyrum. Það eru ekki bara kirkjudyr, heldur dyr að samfélagi og hjörtum fólks. Þær loka úti fólk á flótta, þær fela sannindi, þær einangra og halda úti straumum breytinga og umskipta.
Sístæð siðbót leitar uppi lokaðar dyr. Hlutverk lútherskrar kirkju er að draga fram boðskap Jesú Krists í því samhengi. Hann er mælikvarðinn á trú okkar og gjörðir. Kirkjur hans eru víða um land og víða um heim. Margbreytilegar og ólíkar sem þær eru að stærð og sniði standa eftir þau sannindi sem bjuggu að baki umbótum Lúthers: Hin sanna kirkja er ekki í Róm eða á Raufarhöfn. Hún er í hjarta hvers kristins manns. Og þær eru jafn misjafnar og við mennirnir erum.